Reglur
Það geta allir tekið þátt í Grýlupottahlaupinu og allir hlaupa á sínum hraða, aðal atriðið er að hafa gaman.
Passið að hafa númerið ykkar sýnilegt framan á bringu þegar þið komið í markið, annars er tíminn ykkar ekki mældur. Ekki hlaupa mörgu sinnum í gegnum markið. Það getur ruglað þá sem eru að taka tímann og þá getur verið að þú eða einhver annar fái rangan tíma. Foreldrar sem hlaupa með börnum sínum og eru ekki með númer eru beðin um að takmarka hlaup í gegnum endamark.
Hlaupið er 6 laugardaga í röð og allir þeir sem hlaupa 4 hlaup eða fleiri hljóta viðurkenningu. Grýlupottahlaupið er haldið af Frjálsíþróttadeild UMF Selfoss og má sjá æfingatíma deildarinnar hér: https://www.selfoss.net/frjalsar/aefingatimar
Muna svo bara að hafa gaman!